„Þetta var skrímsli sem sá eiginmann minn sem ómannlega pólitíska vél og reyndi að kæfa ástríðu hans, hlátur, hugvit, ást á tónlist og innblástur,“ sagði fyrrverandi forsetafrúin Melania Trump í yfirlýsingu sem hún deildi á X um skotárásina á Trump í gær.
Í yfirlýsingunni þakkaði hún öryggisþjónustu- og lögreglumönnum sem hættu lífi sínu til að vernda Trump.
Þá sendi hún samúðarkveðjur til fjölskyldna fórnarlamba árásarinnar.
Melania Trump hefur varla tekið þátt í kosningabaráttu eiginmanns síns og hefur hvorki sést á kosningafundum né opinberum atburðum.
Trump kveðst heill af húfi eftir skotárásina þrátt fyrir að byssukúlan hafi farið í eyra hans.