„Hann er klón af Trump“

Kosningateymi Biden fer ekki fögrum orðum um varaforsetaefni Trumps í …
Kosningateymi Biden fer ekki fögrum orðum um varaforsetaefni Trumps í komandi forsetakosningum. Getty/Andrew Harnik

Kosningateymi Joe Bidens Bandaríkjaforseta gagnrýnir val Donalds Trumps, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, á varaforetaefni sínu. Teymið lýsir honum sem öfgahægrimanni.

J.D. Vance, öldungadeildaþingmaður frá Ohioríki, var í dag valinn varaforsetaefni Trumps í komandi forsetakosningum sem fara fram í nóvember. 

„Vance neitar niðurstöðum kosninganna 2020, hann styður bann á fóstureyðingum í landinu og kaus gegn auknu aðgengi að glasafrjóvgunum,“ sagði talsmaður kosningateymis Bidens. 

Þá hefur Biden lýst Vance sem klón af Trump. 

„Hann er klón af Trump, ég sé engan mun á þeim," sagði Biden við blaðamenn spurður um álit sitt á Vance áður en hann flaug til Nevadaríkis í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert