Jill Biden, forsetafrú Bandaríkjanna, og Melania Trump, fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, hafa rætt saman í kjölfar banatilræðis við Donald Trump á laugardaginn.
Þetta staðfesta talsmenn Biden við fréttastofu Associated Press.
Ekki eru komnar neinar nánari upplýsingar um hvað fór fram á milli þeirra en samtalið átti sér stað í gærkvöldi.
Joe Biden Bandaríkjaforseti og Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hafa einnig rætt saman og sagði Biden í gær að samtalið hefði verið stutt og gott.
„Þetta var skrímsli sem sá eiginmann minn sem ómannlega pólitíska vél og reyndi að kæfa ástríðu hans, hlátur, hugvit, ást á tónlist og innblástur,“ sagði Melania Trump um árásarmanninn í yfirlýsingu á sunnudaginn.
Í yfirlýsingunni þakkaði hún öryggisþjónustu- og lögreglumönnum sem hættu lífi sínu til að vernda Trump.
Þá sendi hún samúðarkveðjur til fjölskyldna fórnarlamba árásarinnar.