Robert Kennedy fær vernd frá leyniþjónustu

Kennedy Jr. er hér til hægri á myndinni. Við hlið …
Kennedy Jr. er hér til hægri á myndinni. Við hlið hans er Trump. Skjáskot/Instagram

Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað bandarísku leyniþjónustunni að veita Robert F. Kennedy Jr. vernd. 

Kenn­e­dy Jr. er son­ur Robert F. Kenn­e­dy sem var bróðir John F. Kenn­dy, fyrr­ver­andi for­seta Banda­ríkj­anna. Kenn­e­dy Jr. gefur kost á sér til embættis for­seta í kom­andi kosn­ing­um. Hann held­ur úti sjálf­stæðu fram­boði fjarri flokk­um demó­krata og re­públi­kana. 

Í ljósi atburða helgarinnar hefur Biden nú ákveðið að Kennedy Jr. verði veitt vernd frá leyniþjónustunni, en um helgina var framin skotárás á kosningaviðburði Donalds Trumps, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í Penn­sylvan­íuríki. Trump særðist á eyra í árás­inni. Al­rík­is­lög­regl­an rann­sak­ar málið sem bana­til­ræði.

Trump særðist á eyra í árásinni.
Trump særðist á eyra í árásinni. AFP/Rebecca Droke

Saga bana­til­ræða við Banda­ríkja­for­seta er löng og blóði drif­in. Um helgina bætt­ist Trump í hóp for­seta og fyrr­verandi forseta sem hafa orðið fyr­ir ógn­um og of­beldi.

Sögu­leg­asta bana­til­ræði síðari tíma var þegar John F. Kenn­e­dy, frændi Kennedy Jr., var skot­inn í Texasríki árið 1963. Árásarmaðurinn hæfði hann í höfuð og bak þar sem for­set­inn var á ferð í opn­um bíl og var hann úr­sk­urðaður lát­inn hálfri klukku­stund síðar. 

Trump kallaði eftir því í dag að Kennedy Jr. yrði veitt vernd frá leyniþjónustunni.

Kennedy Jr. þakkaði Biden á samfélagsmiðlinum X í dag fyrir að veita sér verndina. Hann þakkaði einnig einkareknu öryggisfyrirtæki fyrir að hafa haldið sér öruggum síðustu fimmtán mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert