Grunur um íkveikju: Sjö létust í Nice

Slökkviliðsmenn á vettvangi í Nice í morgun.
Slökkviliðsmenn á vettvangi í Nice í morgun. AFP/Valery Hache

Eldur varð sjö að bana í fjölbýlishúsi í borginni Nice í Suður-Frakklandi í nótt. Grunur er um að um íkveikju hafi verið að ræða. 

Útkall barst klukkan hálf eitt í nótt að íslenskum tíma um eld í Les Moulins-hverfinu í Nice.

Þrjú börn og unglingur voru meðal þeirra sjö sem létust, en þrjú voru þar að auki flutt á spítala til aðhlynningar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert