Demókratar með auglýsingaherferð gegn Biden

Biden hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan hann mætti …
Biden hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan hann mætti Donald Trump í kappræðum í síðasta mánuði. AFP/Erin Schaff

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti hyggst „al­gjör­lega“ ætla að halda áfram í fram­boði að sögn Jen O’M­alley Dillon, meðstjórn­anda í kosn­ingat­eymi Bidens. Á sama tíma hafa nokkr­ir demó­krat­ar hafið aug­lýs­inga­her­ferð gegn sitj­andi for­set­an­um. 

„Joe Biden hef­ur aldrei áður verið jafn ákveðinn í því að vinna Don­ald Trump,“ sagði O’M­alley Dillon í viðtali við MSNBC í morg­un.

Á sama tíma hef­ur hóp­ur demó­krata stofnað póli­tíska aðgerðanefnd, á frum­mál­inu Political acti­on comm­ittee, sem heit­ir „Pass the Torch“ og vill að Joe Biden dragi fram­boð sitt til baka og af­hendi öðrum demó­krata keflið.

CNN grein­ir frá.

Herja á þátt sem Biden horf­ir á

Er hóp­ur­inn að fjár­magna sjón­varps­aug­lýs­ing­ar á einni af upp­á­halds sjón­varps­stöð Bidens, MSNBC, og kom fyrsta aug­lýs­ing­in í morg­un í aug­lýs­inga­hléi í þætt­in­um „Morn­ing Joe“.

Biden þekk­ir vel til þátta­stjórn­enda þess þátt­ar og horf­ir reglu­lega á hann.

Eru aug­lýs­ing­arn­ar aðeins sýnd­ar í Washingt­on-borg og Reho­both Beach í Delaware-ríki þar sem Joe Biden er reglu­lega á heim­ili sínu.

„Biden for­seti, þú bjargaðir lýðræðinu árið 2020. Nú hef­ur þú tæki­færi til að gera það aft­ur. Það er kom­inn tími á að þú af­hend­ir keflið,“ seg­ir i aug­lýs­ing­unni.

Enn einn þingmaður­inn stíg­ur fram

Í morg­un bætt­ist við enn einn demó­krat­inn á Banda­ríkjaþingi sem hvet­ur nú for­set­ann til að draga fram­boð sitt til baka.

„Ég er þar með að biðja Biden að rétta næstu kyn­slóð kyndil­inn,“ skrifaði Sean Ca­sten, þingmaður í full­trúa­deild­inni, í Chicago Tri­bu­ne í morg­un.

Núna hafa yfir 20 þing­menn demó­krata á Banda­ríkjaþingi beðið Biden um að draga fram­boðið til baka.

Staðan tek­in að þrengj­ast

Staða Bidens er tek­in að þrengj­ast enn meira en fjöl­miðlar vest­an­hafs greina frá því að nokkr­ir af hátt­sett­ustu demó­kröt­um lands­ins séu að biðja Biden um að draga fram­boð sitt til baka.

Meðal þess­ara demó­krata eru sagðir vera Chuck Schumer, leiðtogi öld­unga­deild­ar Banda­ríkjaþings, Nancy Pe­losi, fyrr­ver­andi for­seti full­trúa­deild­ar Banda­ríkjaþings, og Hakeem Jef­fries, leiðtogi demó­krata í full­trúa­deild­inni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert