Hulk Hogan reif sig úr bolnum fyrir Trump

Tiltækið hefur vakið mikla atygli.
Tiltækið hefur vakið mikla atygli. AFP/Getty Images/Chip Somodevilla

Bandaríski glímukappinn Hulk Hogan ávarpaði landsfundargesti Repúblikanaflokksins í gær og nýtti tækifærið til að rífa af sér bolinn, eins og hann er þekktur fyrir að gera.

„En það sem gerðist í síðustu viku, þegar þeir skutu á hetjuna mína og reyndu að drepa næsta forseta Bandaríkjanna – mælirinn er fullur. Og ég segi, leyfum Trump-maníunni að hlaupa villt bróðir, leyfum Trump-maníunni að ráða aftur,“ sagði Hogan og vísaði þar með í orðið „Hulkamania“ sem var notað um Hogan og aðdáendur hans á glímuferlinum.

Trump brosti út að eyrum

Eins og sjá má í myndskeiðinu þá féll þetta vel í kramið hjá fundargestum, Trump klappaði og brosti út að eyrum. Undir bolnum sem Hogan reif var annar bolur sem var varningur kosningabaráttunnar. 

„Ég reyndi að halda mig frá stjórnmálum, en eftir allt sem hefur gerst í landinu undanfarin fjögur ár og allt sem gerðist um síðustu helgi, get ég ekki lengur þagað,“ sagði hann.

Time

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert