Kamala Harris býður sig fram til forseta

Varaforseti Bandaríkjanna, Kamala Harris, hefur tilkynnt forsetaframboð sitt.
Varaforseti Bandaríkjanna, Kamala Harris, hefur tilkynnt forsetaframboð sitt. AFP

Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnt framboð sitt til forseta.

Framboðstilkynningin kemur í kjölfar yfirlýsingar Joe Biden Bandaríkjaforseta um að hann hyggist draga framboð sitt til annars kjörtímabils til baka.

Lýsti hann skömmu síðar yfir stuðningi við Harris sem forsetaframbjóðanda.

Í færslu sinni á X þakkar Harris Biden fyrir vel unnin störf og leiðtogahæfni sem forseti.

„Það er minn heiður að hljóta stuðning forsetans og mín ætlun að hljóta þessa tilnefningu,“ segir Harris.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert