Sannur föðurlandsvinur og frábær Bandaríkjamaður

Chuck Schumer, leiðtogi öldungadeildarinnar.
Chuck Schumer, leiðtogi öldungadeildarinnar. AFP

Chuck Schumer, leiðtogi öld­unga­deild­ar Banda­ríkjaþings, kallar Joe Biden Bandaríkjaforseta sannan föðurlandsvin í kjölfar þess að Biden lýsti því yfir að hann drægi framboð sitt til baka.

Segir Schumer að Biden hafi ekki einungis verið frábær forseti fyrir landið heldur sé hann einnig frábær manneskja.

Setur framtíðina í fyrsta sæti

„Ákvörðun hans var auðvitað ekki auðveld, en hann hefur enn og aftur sett landið sitt, flokkinn sinn og okkar framtíð í fyrsta sæti,“ segir Schumer í færslu á X og bætir við að í dag hafi Biden sýnt að hann sé sannur föðurlandsvinur og frábær Bandaríkjamaður.

Greint var frá því á föstudag að nokkrir af hæstsettu demókrötum Bandaríkjanna væru að biðja forsetann að draga framboð sitt til baka og var Schumer sagður vera á meðal þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert