Trump tjáir sig um ákvörðun Bidens

Donald Trump.
Donald Trump. AFP

Donald Trump, frambjóðandi repúblikana til forseta og fyrrverandi Bandaríkjaforseti, segir forsetann Joe Biden aldrei hafa verið hæfan til að gegna embættinu, hvað þá til að bjóða sig fram til þess að gegna því áfram.

Þetta segir Trump um þá ákvörðun Bidens að draga framboð sitt til baka, en hann víkur máli sínu að því á miðli sínum Truth Social.

Trump segir meðal annars að Biden hafi komist í forsetaembættið með lygum og falsfréttum.

Hafi þá allir í kringum hann, þar á meðal læknir hans og fjölmiðlar, vitað að hann væri ekki hæfur til að vera forseti áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert