Sunnudagurinn 21. júlí var heitasti dagur á jörðu síðan mælingar hófust. Þetta sýna frumniðurstöður Kópernikus, loftslagseftirlits Evrópusambandsins.
Meðallofthiti á heimsvísu var 17,09 stig og var því heitasti dagur jarðarinnar síðan mælingar hófust árið 1940.
„Jörðin upplifði heitasta dag sinn,“ sagði í yfirlýsingu Kópernikus.
Síðasta met var sett 6. júlí í fyrra og var meðalhitinn þá 17,08 stig.
„Við erum nú svo sannarlega á óþekktu svæði og þar sem að loftslagið heldur áfram að hlýna munum við án efa sjá ný met á næstu mánuðum og árum,“ sagði Carlo Buontempo, forstjóri loftslagseftirlitsins, í yfirlýsingu.
Í yfirlýsingu Kópernikus sagði að nýtt met gæti verið slegið á næstu dögum áður en það byrjar að kólna.
Hver einasti mánuður frá júní 2023 hefur slegið eigin hitamet.
Þess má geta að samkvæmt veðurathugunum Veðurstofu Íslands var hitinn í Reykjavík þennan dag á bilinu 10-11 gráður og skýjað.