Ávarpar þjóðina eftir að hafa ekki sést í nær viku

Biden ávarpar þjóðina annað kvöld.
Biden ávarpar þjóðina annað kvöld. AFP/Erin Schaff

Joe Biden Bandaríkjaforseti mun ávarpa þjóðina annað kvöld vegna ákvörðunar sinnar um að sækjast ekki eftir endurkjöri. 

Frá þessu greinir hann í færslu á Twitter. 

„Annað kvöld klukkan 8 [að staðartíma] mun ég ávarpa þjóðina frá forsetaskrifstofunni um það sem fram undan er og hvernig ég ætla að ljúka verkinu fyrir bandarísku þjóðina,“ skrifar hann. 

Hann dró framboð sitt til baka á sunnudaginn og tilkynnti það með færslu á Twitter. Ekkert hefur sést til hans síðan hann greindist með Covid-19 í síðustu viku, 17. júlí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert