Minnst 146 látnir í Eþíópíu

Minnst 146 eru látnir.
Minnst 146 eru látnir. Ljósmynd/Fana Broadcasting Corporate

Minnst 146 hafa látið lífið vegna aurskriðu sem féll í suðurhluta Eþíópíu í gær.

Skriðan féll um klukkan 10:00 að morgni á staðartíma í gær. Þegar hafa fundist 96 lík karla og 50 lík kvenna. Leit að fólki heldur áfram og getur því tala látinni hækkað. 

Ríkisfjölmiðillinn Fana Broadcasting Corporate deildi myndum af vettvangi á Facebook-síðu sinni. Þar má sjá fjölda fólks aðstoða við leit að fólki.

Margir hafa aðstoðað.
Margir hafa aðstoðað. Ljósmynd/Fana Broadcasting Corporate
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert