Varpaði handsprengju inn í verslun

Sjúkraþyrla hefur sig til flugs við verslunina þar sem kona …
Sjúkraþyrla hefur sig til flugs við verslunina þar sem kona særðist alvarlega þegar handsprengjan sprakk. Var sprengingunni ætlað að velgja íbúa í húsinu undir uggum. Skjáskot/Fréttatími TV4 Nyhetarna

Unglingspiltur er í haldi lögreglunnar í Södertälje í Svíþjóð, grunaður um að hafa varpað handsprengju inn í verslun í Geneta-hverfinu þar í bænum í gærkvöldi með þeim afleiðingum að kona á sextugsaldri hlaut alvarleg meiðsli eftir að hafa orðið fyrir sprengjubrotum.

Staðfestir Mats Eriksson upplýsingafulltrúi lögreglunnar það við sænska ríkisútvarpið SVT að brotamaðurinn grunaði sé á táningsaldri, fimmtán til átján ára, og hafi lögregla haft uppi mikinn viðbúnað eftir að henni barst tilkynning um sprengingu í verslun í Södertälje þar sem hvert ofbeldisverkið hefur rekið annað síðustu misseri.

Konan, sem hlaut benjar af, er ekki í lífshættu en svo öflug var sprengingin að ástæða þótti til að kanna hvort burðarvirki byggingarinnar hefði laskast en svo reyndist ekki.

Lögreglumenn standa vörð við lokunarlínu á vettvangi í gærkvöldi.
Lögreglumenn standa vörð við lokunarlínu á vettvangi í gærkvöldi. Skjáskot/Fréttatími TV4 Nyhetarna

Líklega til höfuðs liðsmanni gengis

Er atvikið talið hafa átt að skjóta liðsmanni glæpagengisins Ronnafalangen skelk í bringu en hann er skráður til heimilis í íbúðahluta hússins. Þetta hefur SVT eftir heimildarmönnum en lögregla hefur ekki viljað staðfesta.

Svo rammt hefur kveðið að ódæðisverkum í Södertälje að lögregla sá ástæðu til þess, fyrr í mánuðinum, að setja upp sérstakt öryggissvæði sem náði til hverfanna Geneta og Västra Blombacka.

Frá þessu greindi Morgunblaðið á sínum tíma en öryggissvæðið var við lýði í um hálfan mánuð og fól í sér að lögregla var þar með mikla viðveru og leitaði á fólki og í bifreiðum án þess að sérstakur rökstuddur grunur um óhreint mjöl í pokahorninu væri fyrir hendi.

SVT
Aftonbladet
TV4 Nyhetarna

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert