Grunaður um brot gegn átta börnum í Noregi

Álasund í Noregi.
Álasund í Noregi.

Starfsmaður í skóla í Álasundi í Noregi er grunaður um kynferðisbrot á átta börnum undir 14 ára aldri.

Upphaflega beindist grunur að brotum gagnvart sex börnum sem sækja skólann en við rannsókn lögreglu hafa tvö börn bæst í hóp meintra þolenda.

Maðurinn er sagður liggja undir grun um að hafa brotið á einu barni með beinum hætti sem og með því að hafa orðið sér úti um myndefni af hinum börnunum.

Í yfirlýsingu frá lögreglu segir að maðurinn hafi eytt myndefninu en við yfirferð lögreglu á stafrænum gögnum úr raftækjum mannsins náði hún að hafa upp á frekari gögnum sem benda til þess að brot mannsins hafi verið umfangsmikil. 

NRK segir frá

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert