Rússi skipulagði „umfangsmiklar“ aðgerðir fyrir Ólympíuleikana

Hinn fertugi Griazov lagði stund á matreiðslunám við Le Cor­don …
Hinn fertugi Griazov lagði stund á matreiðslunám við Le Cor­don Bleu-skól­ann í París og hefur búið í borginni í rúman áratug. Á föstudag var hann handtekinn. Samsett mynd/Instagram/AFP

Rússneskur kokkur, fyrrverandi lögmaður og raunveruleikastjarna fékk skipanir frá Kreml um að slá opnunarhátíð Ólympíuleikanna „úr jafnvægi“ á morgun. Insider segir að að Griaznov hafi uppljóstrað um áform sín er hann sat ölvarður við drykkju í Búlgaríu.

Rússinn nefnist Kirill Griaznov og miðillinn segir hann hafa sterk tengsl við yfirmenn rússnesku alríkislögreglunnar, FSB, og leyniþjón­ustu rússneska hers­ins, GRU.

Franskar öryggisþjónustur hafa nú handtekið Griaznov og fundið nægileg sönnunargögn til að ákæra hann fyrir njósnir, skrifar rússneski miðillinn Insider.

„Frakkarnir munu fá opnunarhátíð sem aldrei fyrr,“ er haft eftir Griaznov úr samtali sem hann átti við yfirmann sinn í FSB fyrir tveimur mánuðum.

„Umfangsmiklar“ aðgerðir gætu leitt til 30 ára í tukthúsi

Hinn fertugi Griazov lagði stund á matreiðslunám við Le Cor­don Bleu-skól­ann í París og hann hefur búið í borginni í rúman áratug

Á sunnudag, 19. júlí var hann handtekinn í París þar sem hann hefur setið undir rannsókn franskra yfirvalda vegna meintra njósna fyrir rússnesku FSB.

Að sögn franskra yfirvalda var verkefni Rússans að „egna til ófriðar í Frakklandi“. En það virðist hafa mistekist um leið og hann státaði sig af verkefninu ölvarður.

Griaznov hóf nám við Le Cordon Bleu árið 2010.
Griaznov hóf nám við Le Cordon Bleu árið 2010. Ljósmynd/Instagram

Í íbúð hans fannst „diplómatískt efni“ að sögn saksóknara í Frakklandi og var hann ákærður fjórum dögum síðar. Verði hann sakfelldur á hann yfir höfði sér 30 ára fangelsisvist.

Frönsk yfirvöld segja að hann hafi verið að skipuleggja „umfangsmikla“ aðgerð sem gæti hafa haft „alvarlegar“ afleiðingar.

Fimm þúsund grunaðir um „njósnir“

Þetta gerist á afar spennuþrungnum tímum í Frakklandi, þar sem yfirvöld hafa undanfarnar vikur glímt við ögranir og jafnvel hryðjuverkaógnir úr smiðjum Rússa. Flest hefur þetta tengst stuðningi Frakklands við Úkraínumenn, sem verjast innrás Rússa eftir fremsta megni sem staðið hefur yfir í rúm tvö ár.

Á morgun, 26. júlí, hefjast sumarólympíuleikarnir í París og öryggisráðstafanir hafa verið auknar umtalsvert. Tugþúsundir lögreglumanna hafa verið kallaðar út og um milljón gesta hefur verið skimuð til varúðar.

Að sögn AP hefur 5 þúsundum manns þegar verið meinað að sækja leikana. Þar af er fimmtungur grunaður um „afskipti erlendis frá – við getum sagt njósnir“ að sögn Gérald Darmanin, innanríkisráðherra Frakklands.

Ólympíuleikarnir voru vissulega í skotskífu Griaznovs, samkvæmt sameiginlegri rannsókn The Insider, Le Monde og Der Spiegel.

Alkóhólisminn kom upp um hann

Griaznov er alkóhólisti, eða svo segja fyrrverandi kærustur hans sem kveðast hafa hætt með honum af þeirri sök. Og drykkjan virðist nú hafa orðið honum að falli.

Þann 7. maí var Griaznov á leið frá Moskvu til Parísar með millilendingu í Istanbul. En hann varð svo ölvaður að flugvallarstarfsfólk í Istanbul hleypti honum ekki inn í flugvélina.

Þá tók hann frekar leigubíl að landamærum Búlgaríu þar sem bróðir hans á íbúð og dvaldi hann þar í nokkra daga.

Eitt kvöldið varð Griaznov svo ölvaður að hann sagði við nágranna sinn að hann hefði fengið sérstakt verkefni sem fælist í því að slá Ólympíuleikana úr jafnvægi. Þegar nágranninn sagðist ekki trúa honum tók hann fram FSB-skírteinið sitt, að sögn sjónarvotta.

Einhverra hluta vegna samþykkti nágranninn að aka Griaznov til borgarinnar Varna. Á leið sinni þangað mun Griaznov hafa fengið símtal frá fulltrúa FSB og tjáð honum að hann hefði fengið til liðs við sig „einn Moldóva frá Chisinau“. Franska lögreglan hefur þetta einnig til rannsóknar. 

Virðist þaulskipulagt

Griaznov lítur varla út fyrir vera þrautþjálfaður rússneskur hermaður, að minnsta kosti ekki út frá Instagram-reikningi hans að dæma, þar sem hann birtir aðallega myndir af mat eða sjálfum sér.

Hann var einu sinni raunveruleikastjarna í heimalandinu, nánar til tekið í stefnumótaþáttunum „Veldu mig“ sem byggja á hinum víðfrægu raunveruleikaþáttum „The Bachelor“ – eða „Piparsveinninn“ á íslensku.

En svo virðist sem þetta hafi allt verið þaulskipulagt – og þá langt áður en innrás Rússa inn í Úkraínu hófst.

Bakgrunnur Griaznovs sem kokkur er nefnilega starfstitill sem rússneskir njósnarar notast við í síauknu mæli. Starfstitill Griaznovs sem slíkur birtist nánast upp úr þurru.

Hann er lögfræðingur að mennt og hóf ekki kokkanám í París fyrr en 2010. Fyrir það hafði hann unnið fyrir lúxemborgsk ráðgjafafyrirtæki. En eftir að hann hóf kokkanám vann hann sem kokkur á K2 í frönsku Ölpunum, Michelin-stað sem er í miklu uppáhaldi meðal Rússneskra auðkýfinga.

Bróðir hans, Dmtri Griaznov, er einnig kokkur og er einnig talin hafa sterk tengsl við GRU. Hann á m.a. sama einkabílstjóra og Andrei Tsjekanov, starfsmaður GRU.  

Grunsamlegir tölvupóstar fundust í pósthólfi Kirills Griaznovs, m.a. trúnaðargögn um rússneskan majór í GRU og tölupóstasamskipti við hinn breska Robert Skidelsky lávarð, sem hefur er sagður hafa tengsl við ólígarka.

Árið 2012 sendi hann húsráðanda sínum tölvupóst um að hann væri farinn aftur til Mosvku til að starfa sem „opinber starfsmaður“ fyrir „ríkisstjórn Rússa“ en útskýrði ekki nánar. 

Kokkabakgrunnur Griaznovs er einnig snoðlíkur bakgrunni annars Rússa: Vitalíj Kóvalev, sem er hergagnaverkfræðingur að mennt og vann að rannsóknum fyrir fyrirtæki sem smíðar þyrlur handa Rússaher. En hann hætti skyndilega til að læra eldamennsku í Sankti-Pétursborg. Sá var síðar handtekinn í Bandaríkjunum og fannst njósnabúnaður í bíl hans.

„Áreiðanlegur“ og „traustur“

Kl. 6 að morgni þann 19. júlí var húsleit framkvæmd á húsnæði Griaznovs og hefur hann nú verið ákærður fyrir njósnir „með erlendum yfirvöldum til þess að egna til ófriðar í Frakklandi“. Hann er nú í gæsluvarðhaldi.

„Við höfum sterkan grun um að hann ætlaði að skipuleggja aðgerðir er varða veiklun [e. destabilisation], afskipti og njósnir,“ segir Gérald Darmanin innanríkisráðherra í viðtali við BFM.

Insider tekur fram að Griaznov lýsir sér á ferilskrá sem „áreiðanlegu“ og „traustum“ liðsfélaga sem hefur „hæfileika til að ná settum markmiðum“. Yfirmenn Griaznovs í Rússlandi munu sennilega lesa öðruvísi í þessar lýsingar hans núna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert