Rússar nota tónverk Hildar Guðnadóttur og Glass án leyfis

Hildur Guðnadóttir og Philip Glass eiga höfundarétt á tónverki í …
Hildur Guðnadóttir og Philip Glass eiga höfundarétt á tónverki í ballettsýningunni Wuthering Heights sem Rússar hyggjast sýna í leyfisleysi. AFP

Bandaríska tónskáldið Philip Glass, einn höfunda tónlistarinnar í ballettsýningunni Wuthering Heights, sakar Rússa, sem hyggjast setja verkið upp, um að nota tónlist sína og nafn sitt í auglýsingum fyrir sýninguna í leyfisleysi. Hann sakar þá um hreinan hugverkastuld.

Tónverk ballettsins er ekki aðeins eftir Glass, heldur einnig eftir Hildi Guðnadóttur. Hún hefur ekki gefið frá sér yfirlýsingu varðandi málið.

Veit að alþjóðalögin eru gagnslaus eins og er

„Notkun á tónlist minni og notkun nafns míns án míns samþykkis er sjóræningjastarfsemi,“ kemur fram í tilkynningu Glass.

Rússar hyggjast setja upp ballettsýninguna í óperuhúsi sínu í Sevastapol og eiga sýningar að hefjast í næstu viku. Glass birti tilkynningu á samfélagsmiðlinum X þess efnis og sagðist vita fullvel að hann gæti ekki sótt rétt sinn vegna stöðunnar á Krímskaganum og væru því alþjóðalög gagnslaus um þessar mundir.

Það stöðvar hann þó ekki í því að mótmæla þessum þjófnaði eins og fram kemur í tilkynningunni sem má lesa hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert