Tvö börn stungin til bana og níu særð

Lögreglumenn standa vörð við Hart-stræti í Southport.
Lögreglumenn standa vörð við Hart-stræti í Southport. AFP

Tvö börn eru látin og níu eru særð eftir hnífsstunguárás á dansnámskeiði í bæn­um Southport í norðvest­ur Englandi. Sautján ára drengur er grunaður um verknaðinn og hefur verið handtekinn.

Lög­regl­an á Mers­eysi­de var kölluð að Hart-stræti í Sout­hport um klukk­an 10.50 að ís­lensk­um tíma í dag. Upplýsingar um tildrög árásarinnar liggja ekki fyrir að svo stöddu.

Sex af hinum níu særðu eru þungt haldin á sjúkrahúsi, samkvæmt upplýsingum sem BBC hefur frá lögreglunni. Þá séu tveir fullorðnir einnig þungt haldnir.

Frá vettvangi.
Frá vettvangi. AFP

17 ára drengur handtekinn

Vopnaðir lög­reglu­menn hand­tóku 17 ára dreng og lögðu hald á hníf í hans fórum. Lögreglan segir drenginn vera frá Banks í Lancaskíri, þó upprunalega frá Cardiff, en hann er grunaður um manndráp og tilraun til manndráps.

Lögreglan leitar ekki að fleiri mönnum í sambandi við árásina, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá lögreglunni.

BBC hefur eftir Tim Johnson, blaðamanni Eye on Southport, að árásin hefði átt sér stað á dansvnámskeiðinu Hope of Hart. Þar séu haldnir jóga- og danstímar fyrir börn á aldrinum sex til tíu ára. Aldur fórnarlambanna liggur þó enn ekki fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert