Appelsínugul viðvörun í París

Appelsínugul viðvörun verður víða í gildi í Frakklandi kvöld, þar …
Appelsínugul viðvörun verður víða í gildi í Frakklandi kvöld, þar á meðal í París, en á morgun tekur gul viðvörun við í höfuðborginni. Kort/Franska veðurstofan

Franska veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun vegna veðurs í höfuðborginni París þar sem Ólympíuleikarnir fara nú fram.

Spáð er miklu þrumuveðri og rigningu og jafnvel hagléli frá klukkan 18 í kvöld (klukkan 16 að íslenskum tíma).

Á morgun tekur gul viðvörun við af þeirri appelsínugulu en óvíst er hvaða áhrif veðurspáin hefur á Ólympíuleikanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert