Óeirðir í Southport: Lögreglubíll í ljósum logum

Þykkan reykjarmökk leggur yfir svæðið.
Þykkan reykjarmökk leggur yfir svæðið. Skjáskot/Twitter

Óeirðir hafa brotist út á götum Southport í Englandi, þar sem þrjú börn voru stungin til bana í gær. Búið er að kveikja í lögreglubifreið og nokkrir lögreglumenn eru særðir.

Um hundrað mótmælendur, aðallega karlmenn ýmist klæddir grímum eða hettum, eiga nú í átökum við lögreglu fyrir utan mosku í Southport. 

Þykkan reykjarmökk leggur yfir svæðið og myndskeið á samfélagsmiðlum sýna lögreglubíl í ljósum logum. 

Sky News greinir frá. Lögreglan hefur fordæmt óeirðirnar og telur að þjóðernisöfga­sam­tökin English Defence League standi fyrir mótmælunum. „Enskur þar til ég dey!“ heyrist í þeim hrópa í kór.

Ekkert bendi til þess að stungumaðurinn sé múslimi

Mótmælin virðast vera viðbrögð við hnífstunguárás sem varð í bænum í gær.

Þrjár stúlkur á aldrinum 6 til 9 ára voru stungnar til bana á dansnámskeiði í bænum. Alls voru 11 börn stungin og 2 fullorðnir.

Sautján ára drengur hefur verið handtekinn í tengslum við verknaðinn. Lög­regl­an seg­ir dreng­inn vera frá Banks í Lanca­skíri, þó upp­runa­lega frá Car­diff, en hann er grunaður um mann­dráp og til­raun til mann­dráps.

Lögreglan hefur staðfest að hann sé fæddur í Bretlandi. Sky News tekur fram að ekkert bendi til þess að hann sé múslimi. Lögreglan í Merseyside segir að hópurinn hafi byrjað að grýta moskuna í bænum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert