Þriðja barnið látið eftir stunguárásina

Tveir fullorðnir og fimm börn eru sögð vera í lífshættu …
Tveir fullorðnir og fimm börn eru sögð vera í lífshættu eftir stunguárásina. AFP/Darren Staples

Lögreglan í Merseyside hefur staðfest andlát þriðja barnsins eftir stunguárásina í borginni Southport í Englandi í gær. 

Níu ára gömul stúlka lést fyrr í morgun af völdum áverka sem hún hlaut í stunguárásinni. 

Dagblaðið Guardian greinir frá.

Fimm börn í lífshættu

Átta önnur börn særðust í árásinni og fimm þeirra eru sögð vera í lífshættu. 

Tveir fullorðnir eru í lífshættu að sögn lögreglunnar. 

Sautján ára unglingur er í haldi lögreglu grunaður um árásina. Hann er frá bænum Banks í Lancashire, en fæddur í Cardiff í Wales.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert