Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna, Pentagon, hefur tilkynnt að sent verði fleiri herskip og orrustuþotur til Ísraels til að hjálpa landinu að verja sig gegn árásum Írans og bandamanna þess.
BBC greinir frá.
Spennustig í Mið-austurlöndum er nú gífurlega hátt eftir að leiðtogi hryðjuverkasamtakanna Hamas, Ismail Haniyeh, og háttsettur leiðtogi í Hisbollah-hryðjuverkasamtökunum, Fuad Shukr, voru felldir.
Í tilkynningu varnarmálaráðuneytisins segir að sendingin muni meðal annars bæta vernd bandarískra herafla, auka stuðning við varnir Ísraels og tryggja að Bandaríkin séu reiðubúin til að bregðast við ýmsum óvæntum aðstæðum.
Innifalið í sendingunni verða frekari eldflaugakerfi með þotunum og tundurspillar.