Bresk yfirvöld glíma nú við verstu óeirðir sem brotist hafa út þar í landi í 13 ár. Óeirðirnar tengjast upplýsingaóreiðu er verðar stunguárás í Southport á miðvikudag.
Þrjár telpur létust er 17 ára drengur stakk þær til bana í dansstúdíó.
Í kjölfarið brutust út óeirðir víða um Bretland þar sem þjóðernissinnar mótmæltu innflytjendum, og þá sérstaklega múslimum.
Um 90 manns voru handteknir í gær, meðal annars í Liverpool, Manchester, Bristol og Belfast.
Mótmælendur hafa kastað múrsteinum, flöskum og blysum að lögreglu, auk þess að kveikja í verslunum.
Verri óeirðir hafa ekki sést í Bretlandi síðan árið 2011 eftir að lögreglan drap hörundsdökkan mann í Lundúnum.
Ríkisstjórnin greindi frá því að lögreglan hefði „öll þau úrræði sem hún þyrfti á að halda“ til þess að takast á við óeirðirnar.
Árásarmaðurinn er fæddur og uppalinn í Cardiff í Wales, sonur innflytjenda frá Rwanda.