378 óeirðarseggir handteknir í Bretlandi

Frá mótmælum í Bristol-borg á laugardaginn.
Frá mótmælum í Bristol-borg á laugardaginn. AFP/Justin Tallis

Lögreglan í Bretlandi hefur handtekið 378 manns síðan óeirðir hófust í kjölfar hnífaárásar í Southport þar sem þrjú ung börn létu lífið. 

„Við búumst við því að sú tala muni fara hækkandi með degi hverjum á meðan lögreglan heldur áfram að beri kenni á þau sem hafa komið að óeirðunum og handtaka þau sem bera ábyrgð á þeim,“ segir yfirlögregluþjónninn Gacin Stephens.

„Unnið er að þessu allan sólarhringinn,“ segir hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert