Læknir grunaður um að myrða fjórar konur

Konurnar fjórar voru á aldrinum 41 til 92 ára.
Konurnar fjórar voru á aldrinum 41 til 92 ára. Ljósmynd/Colourbox

39 ára gamall læknir í Berlín er í haldi grunaður um að hafa orðið fjórum konum að bana á aldrinum 72 til 94 ára og kveikt í húsum þeirra.

Læknirinn veitti líknarmeðferð fyrir hjúkrunarþjónustu. Er hann sakaður um að hafa kveikt í húsum kvennanna til að hylma yfir glæpi sína. 

Er hann sagður hafa framið glæpina á tímabilinu 11. júní til 24. júlí. Á hann yfir höfði sér ákærur fyrir manndráp, íkveikju og tilraun til íkveikju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert