20 mánaða fangelsi fyrir Facebook-færslur

Mótmælendur í Nottingham.
Mótmælendur í Nottingham. AFP/Darren Staples

Jordan Parlour, 28 ára gamall karlmaður frá Englandi, hefur verið dæmdur í 20 mánaða fangelsi fyrir Facebook-færslur sem hann birti.

Maðurinn játaði að hafa birt færslurnar sem hvöttu fólk til þess að ráðast á hótel í Leeds, borg í norðurhluta Englands, þar sem hælisleitendur og flóttafólk dvöldu.

Þetta er fyrsta mál sinnar tegundar sem tengist óeirðunum á Englandi í kjölfar stunguárásarinnar þar sem þrjár stúlkur á aldrinum sex til níu ára létu lífið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert