Ísraeli skotinn til bana á Vesturbakkanum

Árásin átti sér stað í Jórdandalnum.
Árásin átti sér stað í Jórdandalnum. AFP

Ísraelskur borgari lést í dag og annar særðist í skotárás á Vesturbakkanum. Um er að ræða átjánda ísraelska borgarann sem hefur látið lífið í árásum Palestínumanna á svæðinu frá 7. október en á sama tíma hafa yfir 600 Palestínumenn verið drepnir þar. 

Samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum í Ísrael er hinn látni á þrítugsaldri en hinn maður sem særðist var 33 ára. Hann hlaut skotsár á neðri hluta líkamans og var fluttur af vettvangi með þyrlu. Ísraelski herinn hefur gefið út að hinn látni hafi verið ísraelskur ríkisborgari.

Í yfirlýsingu hersins segir að „hryðjuverkamenn hafi skotið úr ökutæki á ferð á fjölda bíla á svæðinu“.

Elta árásamennina uppi

„Í kjölfar árásarinnar lést ísraelskur borgari og annar særðist og gengst nú undir læknismeðferð. Hermenn elta nú hryðjuverkamennina uppi,“ segir í yfirlýsingunni.

Árásin átti sér stað í Jórdandal á norðurhluta Vesturbakkans.

Átján Ísraelar hafa verið drepnir á Vesturbakkanum í árásum Palestínumanna frá því stríð Ísraels og Hamas hófst með árás Hamas 7. október.

Að minnsta kosti 617 Palestínumenn hafa á sama tíma verið drepnir á hernumdu svæðinu af ísraelskum hersveitum og landtökumönnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert