Norrænir félagsráðgjafar vilja vopnahlé á Gasa

Norrænir félagsráðgjafar hafa sent frá sér áskorun á stjórnvöld á …
Norrænir félagsráðgjafar hafa sent frá sér áskorun á stjórnvöld á Norðurlöndum. AFP/Eyad Baba

Samtök félagsráðgjafa á Norðurlöndum hafa gefið frá sér sameiginlega áskorun til stjórnvalda á Norðurlöndum vegna stríðsins á milli Ísraels og hryðjuverkasamtakanna Hamas.

„Við, Samtök félagsráðgjafa á Norðurlöndum, hvetjum okkar stjórnvöld til þess að krefjast þess að alþjóðleg mannúðarlög séu virt á Gasa. Dráp og limlestingar almennra borgara, þar á meðal félagsráðgjafa, verður að linna strax,“ segir meðal annars í tilkynningu frá samtökunum.

Samtökin segja að mannúðarástandið og „fregnir af stríðsglæpum“ hafi mikil áhrif á samtökin.

„Til að bjarga mannslífum er nauðsynlegt að krefjast vopnahlés, lausnar gíslanna og víðtækrar mannúðaraðstoðar.“

„Ómeðhöndluð áföll munu hindra friðsamlega samvist“

Enn fremur segir að til lengra tíma litið þá sé þörf á langtíma sálfélagslegri og félagslegri enduruppbyggingu.

„Norðurlöndin og alþjóðasamfélagið verða að forgangsraða og undirbúa aðgerðir til að endurbyggja einstaklinga, samfélög og borgaralegt samfélag á Gasa.

Ómeðhöndluð áföll munu hindra friðsamlega samvist, sem hvorki Ísraelar né Palestínumenn eiga að gjalda fyrir,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert