Ellefu ára strákur stunginn til bana

Mocejón er í um fjórtán kílómetra fjarlægð frá borginni Toledo.
Mocejón er í um fjórtán kílómetra fjarlægð frá borginni Toledo. mbl.is/Inga

Ellefu ára gamall strákur var stunginn til bana í spænska bænum Mocejón í dag.  

Spænski fréttamiðillinn El País greinir frá. 

Fjölskyldan í áfalli

Strákurinn var að spila fótbolta með öðrum börnum í bænum þegar grímuklæddur maður stakk hann. Talið er að árásarmaðurinn sé 16 eða 17 ára gamall og að hann hafi stungið strákinn nokkrum sinnum. 

Í Mocejón búa um 5000 manns. Fjölskylda stráksins rekur eitt vinsælasta bakaríið í bænum. 

Frændi stráksins sagði við fjölmiðla í dag að hann hafi verið góður strákur. Svona afbrot hafi ekki verið framin þessum litla bæ áður og fjölskyldan sé í áfalli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert