Kviknaði í parísarhjóli í Þýskalandi

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. AFP/Philip Fong

Eldur kviknaði í parísarhjóli á tónlistarhátíð sem haldin var nálægt þýsku borginni Leipzig í gær.

65 manns slösuðust. Flestir hlutu minniháttar meiðsl en sextán voru fluttir á spítala. Fjórir þeirra hlutu brunasár og einn slasaðist við fall.

Þýski fréttamiðillinn Tagesschau greinir frá. 

Lögreglan rannsakar nú málið, en talið er að kviknaði hafi í efni undir hjólinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert