Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur hvatt Hamas og Ísrael til þess að afvegaleiða ekki vopnahlésviðræður sínar. Þetta gerði Blinken á fundum sínum í Ísrael í dag.
Átti hann þar meðal annars fundi með forsætisráðherra Ísraels, Benjamín Netanjahú, og forsetanum Isaac Herzog.
Búist er við því að viðræður um vopnahlé hefjist á ný í vikunni í Egyptalandi.
Blinken hefur sagt komandi viðræður mögulega síðasta tækifærið til þess að ná vopnahléi fram og gíslum Hamas-samtakanna heim.
Guardian greinir frá því að Blinken hafi átt þriggja tíma fund með Netanjahú og hafi forsætisráðherrann lýst honum sem jákvæðum.
Þá hafi Blinken einnig rætt við varnarmálaráðherra Ísraels, Yoav Gallant.