Greindist með apabólu án þess að hafa ferðast

Bólusetningarlyf gegn apabólu.
Bólusetningarlyf gegn apabólu. AFP

Nýtt tilfelli apabólu hefur komið upp í Filippseyjum, ekki er enn ljóst um hvaða afbrigði apabólu er að ræða.

Í umfjöllun Reuters kemur fram að greint hafi verið frá tilfellinu snemma á mánudag en beðið sé frekari greiningar til þess að skera úr um um hvaða afbrigði apabólu sé að ræða.

Sá sem smitaðist er 33 ára karlmaður frá Filippseyjum sem hafði ekki ferðast út fyrir landsteinana. Um er að ræða tíunda tilfelli apabólu sem greinist og er formlega staðfest í Filippseyjum síðan í júlí 2022.

Nýtt afbrigði apabólu var staðfest í Svíþjóð í síðustu viku og hefur alþjóðaheilbrigðisstofnunin lýst yfir neyðarástandi vegna hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert