Náðum líkum sex gísla á Gasa

Tveir liðsmenn ísraelska hersins.
Tveir liðsmenn ísraelska hersins. AFP

Ísraelski herinn greindi frá því í dag að hann hafi náð líkum sex gísla í Khan Younis á Gasa í sameiginlegri aðgerð með leyniþjónustunni, Shin Bet.

Þetta kemur fram í ísraelska fjölmiðlinum Haaretz en þar segir Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, að allt verði gert til að koma öllum gíslum til baka, bæði lifandi og látnum.

„Við Sara eiginkona mín sendum kærum fjölskyldum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ég vil þakka hugrökkum hermönnum og yfirmönnum hersins fyrir hugrekki þeirra og afgerandi aðgerðir,“ segir Netanjahú, í viðtali við Haaretz.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert