Í dag hélt Donald Trump sinn fyrsta kosningaviðburð sem var utandyra síðan morðtilraun gegn honum misheppnaðist fyrir mánuði síðan. Eins og vant er hélt hann á lofti háðsglósum gegn andstæðingi sínum, Kamölu Harris, bak við skothelt gler á fjöldafundinum í Norður-Karólínu.
Trump sagði Harris „róttækustu vinstrimanneskju“ í framboði og að milljónir starfa muni „hverfa á einni nóttu“ sigri hún kosningarnar í nóvember. Á hann einnig að hafa sagt: „Ef Kamala vinnur í nóvember er nánast öruggt að af þriðju heimsstyrjöldinni verði.“
Leyniþjónustan mælti með því að Trump héldi sig við viðburði innandyra. Annars hefur leyniþjónustan ekki viljað svara opinberlega um öryggisaðgerðir og undirbúning fyrir fundinn í dag.
Á einum tímapunkti í ræðu sinni yfirgaf Trump sviðið og gekk inn í mannfjöldann til að huga að áhorfanda sem átti við heilsufarsvandamál að stríða.
Norður-Karólína er eitt af svokölluðum sveifluríkjum forsetakosninganna sem búist er við að muni skera úr um úrslitin þann 5. nóvember.
Úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum eru ekki ákvörðuð með heildaratkvæðum á landsvísu heldur ríki fyrir ríki. Hvert ríki hefur mismikið vægi í úrslitunum. Alls sjö ríki eru háð þessari óvissu og þar eyða frambjóðendurnir mestum tíma og peningum í kosningabaráttunni.