Árásarmannsins enn leitað

Frá vettvangi árásarinnar. Maður réðst á fólk með hnífi.
Frá vettvangi árásarinnar. Maður réðst á fólk með hnífi. AFP/Ina Fassbender

Þýska lögreglan leitar enn mannsins sem myrti þrjá með hnífi á bæj­ar­hátíð í þýsku borginni Sol­ingen í gær. Fimm eru alvarlega særðir. Verið var að halda upp á 650 ára af­mæli Sol­ingen er árás­in var gerð.

Lögregla hefur rætt við fórnarlömb árásarinnar sem og vitni. Fjölmennur hópur lögreglumann leitar hins grunaða. 

Nancy Faeser, innanríkisráðherra Þýskalands, segir árásina mikið áfall fyrir Þjóðverja. Í færslu á samfélagsmiðlinum X segir hún hug sinn vera hjá fjölskyldum þeirra sem létust og þeirra sem eru alvarlega særðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert