Drápu fimm sem földu sig í bænahúsi

Ísraelskir hermenn í borginni Tulkarm í morgun.
Ísraelskir hermenn í borginni Tulkarm í morgun. AFP/Jaafar Ashtiyeh

Ísraelsher segist hafa drepið fimm palestínska vígamenn á Vesturbakkanum í morgun sem voru í felum inni í bænahúsi.

Alls hefur herinn drepið 14 manns síðan hann hóf hernaðaraðgerðir á Vesturbakkanum í gær.

„Eftir skotbardaga drápu hersveitirnar fimm hryðjuverkamenn sem höfðu falið sig inni í bænahúsi“ í borginni Tulkarem í morgun, sagði herinn.

AFP/Jaafar Ashtiyeh

Vitni sögðu AFP-fréttastofunni að Ísraelsher hefði dregið sig til baka frá flóttamannabúðunum Al-Farra í bænum Tubas þar sem þó nokkrir Palestínumenn voru drepnir í gær.

Áfram eru átök í gangi í borginni Jenin og í Tulkarem.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert