Gíslar muni snúa aftur í líkkistum

Hundruð þúsunda Ísraela hafa safnast saman á götum landsins síðustu …
Hundruð þúsunda Ísraela hafa safnast saman á götum landsins síðustu tvo daga til að þrýsta á stjórn­völd að ná samn­ing­um um end­ur­heimt gísla. AFP

Hamas-samtökin hafa varað við því að gíslar þeirra snúi aftur til Ísraels í líkkistum ef hernaðarþrýstingur Ísraela heldur áfram.

„Þörf Netanjahús á að frelsa fangana með hernaðarþrýstingi í stað þess að gera samning mun þýða að þeir munu snúa aftur til fjölskyldna sinna í líkkistum,“ segir í tilkynningu frá Abu Obeida, talsmanni hernaðararms samtakanna.

Kemur þá einnig fram í tilkynningunni að þeim vígamönnum sem gæta gíslanna hafi verið sett ný fyrirmæli varðandi hvernig skuli bregðast við ef Ísraelski herinn myndi nálgast staðsetningu þeirra.

Sagði að Hamas myndi gjalda

Tilkynningin kemur í kjölfar blaðamannafundar Benjamíns Netanjahú í Jerúsalem þar sem hann sagði að Hamas-samtökin myndu gjalda fyrir að hafa tekið sex gísla af lífi um helgina.

Greint hefur verið frá að gíslarnir hafi verið skotnir í hnakkann stuttu áður en ísraelski herinn fann lík þeirra.

Víga­menn frá Ham­as tóku 251 gísl í árás sinni á Ísra­el 7. októ­ber sem varð kveikj­an að stríðinu. 97 þeirra eru enn á Gasa­svæðinu, þar á meðal 33 sem Ísra­els­her seg­ir að séu látn­ir.

Þrýstingur á að samkomulag náist

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti fundaði í dag með banda­rísk­um samn­inga­mönn­um í von um að ná sam­komu­lagi um lausn gísla í átök­um Ísra­ela og Ham­as-sam­tak­anna. Banda­ríkja­menn hafa í sam­starfi við samn­inga­menn frá Egyptalandi og Kat­ar eytt mörg­um mánuðum í að koma í kring skipt­um á gísl­um og föng­um á Gasa­svæðinu, ásamt vopna­hléi.

Hundruð þúsunda Ísraela hafa safnast saman á götum landsins síðustu tvo daga til að þrýsta á stjórn­völd að ná samn­ing­um um end­ur­heimt gísla. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert