Unglingar látnir eftir hörmulegt slys

Þeir vinirnir, Gabriel Johan Misiewicz-Myhre, fimmtán ára, og Noah Østerhus …
Þeir vinirnir, Gabriel Johan Misiewicz-Myhre, fimmtán ára, og Noah Østerhus Ask, sextán ára, fundust látnir í sjónum úti fyrir Stavanger, norskum bæ þar sem nánast fleiri eiga báta en bifreiðar. Lítur í fyrstu út fyrir að báteigandi nokkur hafi siglt á sæþotu þeirra og ekki áttað sig á hvað gerðist. Ljósmynd/Samsett/Úr einkasafni

Íbúar Stavanger á vesturströnd Noregs eru harmi slegnir eftir að tveir piltar á táningsaldri, fimmtán og sextán ára, búsettir þar í bænum, fundust látnir í sjónum í Hidlefjorden í gær, sunnudag.

Maður á fertugsaldri situr í haldi lögreglu, grunaður um að hafa siglt báti sínum á sæþotu sem drengirnir stýrðu og með athæfi sínu banað þeim báðum.

Enn er atburðarásin ekki að fullu ljós en eftir því sem Øyvind Bore, ákæruvaldsfulltrúi lögreglunnar í suðvesturumdæmi norsku lögreglunnar, greinir frá í fréttatilkynningu hafði stjórnandi bátsins samband við lögreglu og björgunarmiðstöð aðfaranótt gærdagsins og kvaðst hafa siglt á einhvers konar fyrirstöðu.

Fékk bakþanka

Bátur hans hefði orðið fyrir þungu höggi og líkast til hefði hann rekist á eitthvað í sjónum, ekki væri honum kunnugt um hvað. Hann hélt svo til síns heima eftir að hafa fullvissað sig um að leki hefði ekki komið að fleyi hans.

Í gær hefði hann svo lesið um það í fjölmiðlum að löskuð sæþota hefði fundist í sjónum og þá haft samband við lögreglu á ný. Leit hafi þá hafist sem lyktaði með því að lík drengjanna, þeirra Gabriels Johans Misiewicz-Myhre, fimmtán ára, og Noahs Østerhus Asks, sextán ára, fundust í firðinum.

Lagði lögregla þegar hald á bát mannsins og farsíma og segir verjandi hans, Sigurd Rønningen, að skjólstæðingur hans viðurkenni ekki og telji sig ekki hafa viðhaft saknæma háttsemi í því sem átti sér stað. Sætti hann fyrstu yfirheyrslu í gær.

Martröð allra foreldra

Réttargæslulögmaður foreldra drengjanna, Maren Eide, kveður málið hið sorglegasta. „Þau eru í rúst. Þetta er það versta sem foreldrar geta upplifað,“ segir lögmaðurinn.

Maren Eide er réttargæslulögmaður foreldra drengjanna látnu.
Maren Eide er réttargæslulögmaður foreldra drengjanna látnu. Ljósmynd/ Elden Advokatfirma

Bore ákæruvaldsfulltrúi tekur fram við norska ríkisútvarpið NRK að engan veginn sé hægt að slá því föstu að grunaði hafi í raun stýrt bátnum sem líkast til sigldi á sæþotu piltanna.

„Nú einbeitum við okkur að rannsókn þess hvað henti þessa drengi,“ segir Bore við NRK.

Áfallahjálparteymi Stavanger er í viðbragðsstöðu og reiðubúið að aðstoða þá sem til þess vilja leita auk þess sem kirkjurnar í Bekkefaret og Talgje opnuðu dyr sínar þurfendum klukkan 20 í kvöld.

NRK

VG

Dagsavisen

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert