Tvö börn særðust í hnífaárás í grunnskóla

Árásin varð gerð í grunnskóla í Tékklandi.
Árásin varð gerð í grunnskóla í Tékklandi. Ljósmynd/Colourbox

Tvö börn særðust í hnífaárás í grunnskóla í borginni Domazlice í vesturhluta Tékklands í morgun.

Lögreglan sagði á X að gerandinn hefði verið stöðvaður „innan nokkurra mínútna“.

„Stúlka sem er nemandi réðst á skólafélaga sína með hnífi. Tvö börn særðust og foreldrar þeirra hafa verið látnir vita,“ bætti lögreglan við.

Árásin var gerð á öðrum skóladegi nýs skólaárs. Domazlice er skammt frá landamærum Tékklands og Þýskalands.

Engar upplýsingar hafa borist um líðan barnanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert