Einn látinn og annars saknað á Mallorca

Frá ströndinni á Mallorca.
Frá ströndinni á Mallorca. AFP

Breskur göngumaður fannst látinn og annars er saknað á spænsku eyjunni Mallorca en mikil úrkoma og hvassviðri hefur verið á þessum vinsæla ferðamannastað síðustu dagana.

Björgunarfólk hefur leitað göngumannanna tveggja síðan á mánudagskvöldið á fjallsvæði á Mallorca.

Í yfirlýsingu lögreglunnar kemur fram að líkið sem fannst sé af konu en karlmanns er saknað.

Leitinni hefur verið hætt vegna óveðurs en verður haldið áfram þegar það lagast. Í dag er áfram spáð mikilli rigningu á eyjunni og miklu hvassviðri.

Mallorca er þekkt fyrir fallegar strendur og sólríkt veður og er einn af mest heimsóttu áfangastöðum Evrópu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert