Átján sagðir látnir eftir árás á skólabyggingu

Teppi voru notuð til að flytja þá sem slösuðust í …
Teppi voru notuð til að flytja þá sem slösuðust í árásinni. AFP/Eyad Baba

Viðbragðsaðilar segja átján hafa fallið í árás Ísraelshers á skólabyggingu í Nuseirat á Gasa í gær. Eru átján til viðbótar sagðir særðir. Meðal þeirra sem eru látnir eru starfsmenn á vegum Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA). 

Ísraelsher segist hafa hæft stjórnstöð Hamas-samtakanna.

Frá því að þessi miklu átök á Gasa hófust fyrir liðlega ári hefur Al-Jawni-skólinn í Nuseirat nokkrum sinnum verið skotmark árása Ísraelshers. 

Í síðustu árásinni var skólabyggingin jöfnuð við jörðu en þar höfðu Sameinuðu þjóðirnar komið upp starfstöð og höfðu íbúar á Gasa leitað þar skjóls.

Átján eru sögð hafa látið lífið í árásinni.
Átján eru sögð hafa látið lífið í árásinni. AFP/Eyad Baba

Sex starfsmenn féllu

Í tilkynningu á samfélagsmiðlinum X kom fram að sex starfsmenn UNRWA hefðu látið lífið í tveimur árásum á skólann og nágrenni hans. Mun það vera mesta mannfall meðal starfsmanna stofnunarinnar í einum atburði.

„Meðal þeirra sem féllu var stjórnandi skýlis UNRWA og aðrir í hans teymi sem tóku þátt í að aðstoða fólk á vergangi,“ sagði í færslu á X.

„Við verðum að vernda skóla og aðrir borgaralegir innviðir, þeir eru ekki skotmörk.“

Í yfirlýsingu frá Ísraelsher kom fram að árásin hefði verið „nákvæm“ og að hann hefði hæft stjórnstöð Hamas í Al-Jawni-byggingunni. Ekki kom fram hversu margir hefðu fallið en fram kom að herinn hefði gripið til fjölda aðgerða til að lágmarka skaðann gagnvart almennum borgurum.

„Við höfum gengið í gegnum helvíti í næstum 340 daga.“
„Við höfum gengið í gegnum helvíti í næstum 340 daga.“ AFP/Eyad Baba

Hollywood-myndir sýna ekki svona hrylling

Þeir sem lifðu árásina af snéru aftur á vettvang árásarinnar til að endurheimta lík ástvina. Í samtali við fréttamenn AFP-fréttaveituna segjast þeir hafa neyðst til að stíga yfir útlimi í rústunum.

„Ég get varla staðið á fætur,“ sagði einn maður sem hélt á líkpoka

„Við höfum gengið í gegnum helvíti í næstum 340 daga. Það sem við höfum orðið vitni að á þeim tíma – við höfum ekki séð það enn þá í Hollywood-myndum, það sem við erum að sjá núna á Gasa.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert