Átta fórust í Ermasundi

Mynd sem tekin var af bátnum í dag.
Mynd sem tekin var af bátnum í dag. AFP/Bernard Barron

Átta manns létu lífið á Ermarsundi í nótt, en yfirfullum bát hvolfdi á leið sinni frá Frakklandi til Englands, að sögn yfirvalda í Frakklandi.

Alls hafa því 46 látið lífið á þessari leið á þessu ári. Alls létust 12 manns á síðasta ári.

Heimildarmaður AFP-fréttastofunnar innan lögreglunnar segir að slysið hafi orðið skömmu eftir að báturinn lagði frá landi undan ströndum bæjarins Ambleteuse í norðurhluta landsins.

Um borð voru 59 manns frá Erítreu, Súdan, Sýrlandi, Afganistan, Egyptalandi og Íran.

Sex voru flutt á sjúkrahús, þar á meðal 10 mánaða gamalt barn með ofkælingu.

Franska lögreglan notaði dráttarvél til að ná bátnum upp á …
Franska lögreglan notaði dráttarvél til að ná bátnum upp á land. AFP/Bernard Barron

Borga fúlgur fjár fyrir farið

Stjórnvöld í Frakklandi og Bretlandi hafa árum saman reynt að stöðva straum innflytjenda þeirra á milli.

Innflytjendur hafa borgað smyglurum þúsundir evra til þess að komast á troðnum bátum yfir sundið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert