Bandaríska alríkislögreglan, FBI, segir að skotunum sem var hleypt af í nágrenni við Donald Trump, forsetaframbjóðanda Repúblikanaflokksins, „virðist hafa verið banatilræði“ sem honum var sýnt.
„FBI hefur brugðist við því sem gerðist í West Palm Beach í Flórída og er að rannsaka það sem virðist vera banatilræði sem Trump, fyrrverandi forseta, var sýnt,“ sagði í yfirlýsingu.
Lögreglan hefur þegar handtekið einstakling og lagt hald á vopn í tengslum við það sem gerðist.
Að sögn The New York Times var byssuskotum hleypt af á sama golfvelli og Trump var að spila. Þegar einstaklingurinn var handtekinn höfðu starfsmenn bandarísku leyniþjónustunnar þegar komið Trump í skjól.