Ísraelska lögreglan hefur handtekið ísraelskan ríkisborgara sem íranska leyniþjónustan fékk til að ráða af dögum háttsetta ísraelska embættismenn á borð við forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú.
Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu lögreglunnar og ísraelsku leyniþjónustunnar Shin Bet.
„Ísraelskur ríkisborgari var fenginn af írönsku leyniþjónustunni til að ráða háttsetta Ísraelsmenn af dögum. Honum var smyglað tvívegis inn í Íran og fékk þar greiðslur fyrir að sinna verkefnum,“ sagði í yfirlýsingunni.
Þar kom einnig fram að auk Netanjahús, hefðu varnarmálaráðherra Ísraels, Yoav Gallant, og einn háttsettur embættismaður til viðbótar verið skotmörkin.