Filippo Grandi, yfirmaður Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, greindi frá því í dag að meira en 50 þúsund manns hefðu þegar flúið til Sýrlands eftir að árásir Ísraela á Líbanon stigmögnuðust.
„Fleiri en 50 þúsund Líbanar og Sýrlendingar sem bjuggu í Líbanon hafa nú flúið yfir landamærin til Sýrlands vegna loftárása Ísraela,“ tísti Grandi.
Þá bætti hann við að yfir 200 þúsund manns séu á flótta í Líbanon.
Heilbrigðisráðuneyti Líbanon greinir frá því að 700 hafi látið lífið í árásum Ísraelshers í þessari viku.
More than 50,000 Lebanese and Syrians living in Lebanon have now crossed into Syria fleeing Israeli airstrikes. Well over 200,000 are displaced inside Lebanon.
— Filippo Grandi (@FilippoGrandi) September 28, 2024
Relief operations are underway, including by UNHCR, to help all those in need, in coordination with both governments. pic.twitter.com/Qcvdw79z8A