Tveir skotnir í Stokkhólmi

Sænska lögreglan er búin að girða af stórt svæði í …
Sænska lögreglan er búin að girða af stórt svæði í norðurhluta Stokkhólm, höfuðborg Svíþjóðar. AFP

Stór lögregluaðgerð stendur yfir í Stokkhólmi, höfuðborg Svíþjóðar, eftir að tveir menn voru skotnir. Lögreglan leitar enn að sökudólgi.

Sænska ríkisútvarpið SVT greinir frá.

Skotárásin átti sér stað í Rissne í norðurhluta Stokkhólms og hafa hinir slösuðu verið fluttir á sjúkrahús. Lögreglan veitti ekki upplýsingar um líðan hinna slösuðu.

Lögreglan er búin að girða af stórt svæði og hefur ekki enn fundið sökudólginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert