Sögulegur sigur Frelsisflokksins

Formaðurinn Herbert Kickl fagnar með stuðningsfólki í gær.
Formaðurinn Herbert Kickl fagnar með stuðningsfólki í gær. AFP

Frelsisflokkurinn bar sigur úr býtum í austurrísku þingkosningunum sem haldnar voru í gær. Þetta er í fyrsta skipti sem flokkurinn sigrar í kosningum frá stofnun hans árið 1956. Flokkurinn, sem er hægriþjóðernisflokkur, bætir við sig 25 þingsætum og fær 56 þingmenn kjörna af 183.

Þjóðarflokkurinn ÖVP er annar stærsti flokkurinn með 52 þingmenn. Tapar hann 19 þingsætum en sitjandi kanslari er formaður flokksins. Sósíaldemókratar fylgja þar á eftir með 41 þingmann og bæta við sig einu þingsæti. ÖVP hefur útilokað samstarf við FPÖ undir forystu formannsins Herberts Kickl. Þá hafa Sósíaldemókratar alfarið útilokað samstarf við FPÖ. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert