Drengir særðir eftir hnífstunguárás í Sviss

Árásarmaðurinn var yfirbugaður og honum haldið föstum þar til viðbragðsaðilar …
Árásarmaðurinn var yfirbugaður og honum haldið föstum þar til viðbragðsaðilar mættu á vettvang. AFP

Þrír drengir eru særðir eftir hnífstunguárás fyrr í dag fyrir utan dagheimili í Zürich. Einn drengjanna er sagður alvarlega særður eftir árásina.

Lögregla hefur handtekið 23 ára kínverskan mann í tengslum við árásina.

Frumrannsókn lögreglu leiddi í ljós að maðurinn veittist að börnunum, sem voru í umsjón starfsmanns dagheimilisins, fyrir utan dagheimilið við íbúðargötuna Berninastrasse í norðurhluta Zürich.

Starfsmaðurinn og annar maður voru fljótir til, yfirbuguðu árásarmanninn og héldu honum föstum þar til viðbragðsaðilar mættu á vettvang.

Hlúð var á vettvangi að drengjunum sem urðu fyrir árás mannsins og voru þeir síðan fluttir á sjúkrahús. Einn er sagður alvarlega særður en hinir tveir minna særðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert