Sprengingar nálægt sendiráði Ísraels í Danmörku

Lögreglan að störfum við sendiráðið.
Lögreglan að störfum við sendiráðið. AFP/Emil Helms/Ritzau Scanpix

Danska lögreglan rannsakar tvær sprengingar sem urðu skammt frá sendiráði Ísraels í Kaupmannahöfn.

Enginn særðist í sprengingunum, sem urðu í nótt „mjög nálægt“ sendiráði Ísraels, að sögn Jakobs Hansen, talsmanns lögreglunnar.

AFP/Emil Helms/Ritzau Scanpix

„Enginn særðist og rannsókn stendur yfir á vettvangi,“ hafði lögreglan áður sagt á samfélagsmiðlinum X.

Embættismenn fleiri erlendra ríkja starfa í hverfinu þar sem sprengingin varð, eða í Hellerup, norður af Kaupmannahöfn. Á meðal þeirra eru Íran, Taíland, Tyrkland og Rúmenía.

AFP/Emil Helms/Ritzau Scanpix

Spennan fyrir botni Miðjarðarhafs hefur aukist mjög að undanförnu. Stutt er síðan Íran skaut flugskeytum til Ísraels og hafa Ísraelsmenn heitið hefndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert