Heitir miskunnarlausum árásum

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. AFP/Ohad Zwigenberg

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur lofað áframhaldandi árásum á Hisbollah-samtökin í kjölfar drónaárásar samtakanna á þjálfunarbúðir ísraelska hersins sem varð að minnsta kosti fjórum að bana í gær.

Þá særðust einnig yfir 60 manns í árásinni sem er sú mannskæðasta á ísraelska herstöð síðan 23. september.

„Við munum halda áfram miskunnarlausum árásum á Hisbollah í öllum hlutum Líbanon, þar á meðal Beirút,“ sagði Netanjahú í gærkvöldi er hann heimsótti herstöðina sem staðsett er á svæðinu Binyamina, suður af borginni Haifa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert